
Sagan
Jóhann Ólafsson stofnaði fyrirtækið Jóhann Ólafsson & Co í félagi við bræðurna Sigfús og Sighvat Blöndahl, sem voru meðeigendur frá 1916. Björn M. Arnórsson gekk inn í fyrirtækið 1919, þegar fyrri meðeigendur seldu sinn hlut.
Björn seldi Jóhanni sinn hlut í félaginu árið 1951.
Fyrirtækið haslaði sér strax völl á sviði innflutnings, heildsöludreifingar og smásölu. Jóhann Ólafsson kom víða við á löngum starfsferli sínum, var t.d. forstjóri nokkurra opinberra stofnana t.d. Strætisvagna Reykjavíkur, Innkaupastofnunar Reykjavíkur og átti sæti í brunamálanefnd, hafnarstjórn, í Sjó- og verslunardómi Reykjavíkur og í stjórn Verslunarráðs Íslands. Jóhann var fyrsti Íslendingurinn sem ferðaðist umhverfis jörðina.
Fyrirtækið Jóhann Ólafsson & Co var fyrsta íslenska fyrirtækið sem hóf bein viðskipti við Japan en það var árið 1931.Fyrirtækið hefur kynnt Íslendingum ýmis heimsþekkt vörumerki á löngum starfsferli t.d. General Motors,Good Year, Dunlop, Du Pont, Gillette, OSRAM, Villeroy & Boch, Zanussi, WMF,Yale og Black & Decker o. fl.
Núverandi forstjóri, Jóhann J. Ólafsson, tók við af föður sínum látnum árið 1963.
Fyrirtækið var gert að hlutafélagi 1969.
Fyrirtækið hefur komið mikið við sögu prentiðnaðarins á Íslandi og var fyrst til að kynna ljósnæmar prentplötur. Notkun þeirra var mikil framför í allri prentun.
Árið 2000 keypti fyrirtækið meirihluta í fyrirtækinu Hvítlist og flutti prentdeild sína, þangað til að geta boðið viðskiptavinum sínum meira vöruúrval. (http://www.hvitlist.is/)
Á miðju ári 2004 keypti Jóhann Ólafsson & Co., GV heildverslun af hjónunum Guðjóni og Völu. Fyrirtækið var stofnað 1992 og sérhæfði sig í sölu og dreifingu á sælkeravöru fyrir veitingageirann.
Eftir bankahrunið 2008 breyttist rekstrarumhverfið íslenskra fyrirtækja til muna. Fyrirtækið var endurskipulagt um mitt árið 2009 þar sem ákveðið var að leggja megináherslu á vörur og lausnir tengdum ljósum og lýsingu.
Fyrirtækið er núna leiðandi aðili í sölu og þjónustu á ljósaperum og lýsingarbúnaði frá OSRAM, Traxon, Danlamp, Bailey og fleiri aðilum.
Fyrirtækið eini umboðsaðili OSRAM á Íslandi og hefur verið það síðan árið 1948.
533 1900




Jóhann Ólafsson & Co ehf | Sími: 533 1900 | Krókháls 3 | 110 Reykjavík | Netfang: