Samið um sölu á OSRAM perum í Hörpuna
07.11.2011
Nýlega var gengið frá samningi milli Jóhanns Ólafsson & Co. ehf, umboðsaðila OSRAM á Íslandi og Rekstrarfélagsins Ago ehf., sem sér um rekstur á Tónlistarhúsinu Hörpunni, um að allar perur sem notaðar séu í Hörpunni verði frá OSRAM.
Samningurinn var gerður í kjölfar útboðs sem efnt var til fyrr í haust en alls bárust 6 tilboð frá 6 fyrirtækjum.
Um er að ræða allar perur sem notaðar eru til almennrar lýsingar í Hörpunni en þær eru um 5.500 talsins. Sérstök áhersla mun verða lögð á að nota orkusparandi og endingargóðar ljósaperur til að spara rekstrarkostnað hússins.
Á myndinni má sjá Arnar Þór Hafþórsson, Sölu – og Markaðsstjóra Jóhanns Ólafssonar & Co. og Páll S. Ragnarsson, Tæknistjóra Ljósabúnaðar í Hörpunni, innsigla samninginn.
533 1900





Jóhann Ólafsson & Co ehf | Sími: 533 1900 | Krókháls 3 | 110 Reykjavík | Netfang: