Samið um sölu á tugum þúsunda OSRAM pera
25.10.2011
Nýlega var gengið frá samningi milli Jóhanns Ólafssonar & Co. ehf, umboðsaðila OSRAM á Íslandi og fyrirtækja innan Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja, um sölu á tugum þúsunda OSRAM ljósapera árlega næstu þrjú árin.
Samningurinn var gerður í kjölfar útboðs sem efnt var til fyrr á þessu ári en alls bárust þá 8 tilboð frá 6 fyrirtækjum. Gert er ráð fyrir að hægt verði að framlengja samninginn um tvö ár. Um er að ræða allar perur sem Samorkufyrirtækin munu nota næstu þrjú árin og er stór hluti þeirra til götulýsingar.
Samorkufyrirtækin sem að samningnum standa eru Orkuveita Reykjavíkur, Hitaveita Suðurnesja, Norðurorka, Orkubú Vestfjarða og Rafmagnsveitur Ríkisins (RARIK)
533 1900





Jóhann Ólafsson & Co ehf | Sími: 533 1900 | Krókháls 3 | 110 Reykjavík | Netfang: