Það sem gera skal ef pera brotnar sem inniheldur kvikasilfur
25.05.2010
![]() |
| VERTU MEÐ! Skilum sparperum til endurvinnslu |
Neytendur eru einungis berskjaldaðir fyrir kvikasilfri ef sprunga kemur í glerhylki peru eða ef það brotnar. Ef slíkt gerist skaltu fara eftir þessum reglum til að lágmarka váhrif:
- Haltu ró þinni! Mundu að flúrpera inniheldur einungis mjög lítið magn kvikasilfurs.
- Passaðu að skera þig ekki á glerbrotum.
- Ef peran var í lampa þegar hún brotnaði skaltu vera viss um að aftengja lampann til að forðast raflost.
- Safnaðu saman glerbrotunum - sópaðu þeim upp ef það er mögulegt.
- Notaðu einnota þurrku eða límband til að fjarlægja lítil brot eða ryk.
- Notaðu ryksugu einungis ef yfirborðið býður ekki upp á annan valkost (teppi). Losaðu þig við ryksugupokann sem inniheldur brotin úr perunni.
- Farðu með brotin úr perunni út af heimilinu, þ.e. með því að setja þau í poka og bera þau út.
- Loftaðu út úr herberginu.
- Losaðu þig við bæði brotnar og óvirkar perur með réttum hætti.
Samvinna um endurvinnslu sparpera á Íslandi
Endurvinnsla á notuðum perum sem innihalda kvikasilfur, s.s. sparperur, eru í höndum Efnamóttökunnar á Íslandi. Hefur OSRAM á Íslandi í samvinnu við Efnamóttökuna framleitt tunnur til að auðvelda neytendum að skila ónýtum sparperum til endurvinnslu án endurgjalds. Tunnurnar verða staðsettar hjá þjónustuaðilum OSRAM um allt land t.a.m. BYKO.
Sorpa tekur jafnframt á móti ljósaperum til endurvinnslu og sendir þær til Efnamóttökunnar.
OSRAM framkvæmdi próf sem mældi kvikasilfursmengun í herbergi þar sem flúrpera hafði verið brotin. Raunverulegt magn kvikasilfurs hélst vel fyrir neðan þau mörk sem leyfileg eru innan vinnustaða.
(nánar)
Athugasemd varðandi aðferðir við losun sparpera: Margs konar viðmiðunarreglur má finna á internetinu, gefnar út af virtum stofnunum, og stangast sumar þeirra á við hvora aðra. Reglurnar fyrir ofan eru lítið breytt útgáfa af Energy Star viðmiðunarreglunum. Þú getur lesið þær og aðrar viðmiðunarreglur með því að smella á tenglana fyrir neðan:
- Nánari upplýsingar á Energy Star vefsvæðinu
- Nánari upplýsingar á vefsvæði Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna (Environmental Protection Agency)
- Nánari upplýsingar á vefsvæði European Lamp Companies Federation (ELC)
- Nánari upplýsingar á vefsvæði Umhverfisverndarráðuneytis Þýskalands (á þýsku)
Ef þú hefur neðangreind atriði í huga geturðu tekið upplýsta ákvörðun fyrir sjálfa(n) þig:
- Innöndun kvikasilfursgufu er helsta inngönguleiðin inn í mannslíkamann.
- Við stofuhita er kvikasilfur vökvi sem gufar hægt upp. Þessi uppgufun verður hraðari við hærra umhverfishitastig. Ef pera brotnar meðan kveikt er á henni er mestur hluti kvikasilfursins þegar í formi gufu.
- Þegar pera brotnar loðir mestur hluti kvikasilfursins við brotin og gufar smám saman upp. Að losa sig við brotin í ruslafötu úti við er hröð leið til að koma kvikasilfrinu út úr húsi, en að skilja brotin eftir í ruslafötu inni í eldhúsi þjónar litlum tilgangi. Á sama hátt mun kvikasilfur á brotum í ryksugupoka smám saman gufa upp hvar sem ryksugan er geymd og notuð.
- Að lofta út úr viðkomandi rými dregur verulega úr mælanlegu magni kvikasilfursgufu.
- Notaðu hágæða sparperur frá OSRAM – þannig geturðu verið viss um að kvikasilfursmagnið er vel undir RoHS (Restriction of Hazardous Substances) mörkum.
533 1900





Jóhann Ólafsson & Co ehf | Sími: 533 1900 | Krókháls 3 | 110 Reykjavík | Netfang: