OSRAM útvegar orkunýtnar lýsingarlausnir fyrir alla tíu fótboltavellina
Frá almennri innan- og utanhússlýsingu til flóðljósa og frá lýsingu fyrir veitingastaði til bílastæðalýsingar: háþrýstar úrhleðsluperur, T5 og T8 flúrperur og ljósdíóður frá OSRAM verða notaðar á öllum tíu knattspyrnuvöllunum sem spilað verður á. Af öllum lýsingarlausnunum sem OSRAM útvegar mun bogi með LED lýsingu (þekktur sem „Boginn“ [„The Arch“]) vekja mesta athygli. Boginn er með meira en 12.000 Golden Dragon Plus ljósdíóðum og nær hann yfir allan leikvanginn í Durban.
![]() |
| Leikvangurinn í Durban með OSRAM LED boganum sem þekktur er sem „Boginn“ („The Arch“). Boginn er með meira en 12.000 Golden DRAGON Plus ljósdíóðum. |
Boginn er sjáanlegur úr mikilli fjarlægð enda er hann 350 m langur, 2.600 tonn að þyngd og 30 hæða hár. Boginn er táknrænn fyrir samkomu u.þ.b. 70.000 íþróttaunnenda á leikvanginum í Durban. Þess má geta að fyrsti leikur þýska landsliðsins fer fram á leikvanginum. Svokallaðir LED bitar gefa lýsinguna. OSRAM þróaði bitana í samstarfi við framleiðandann BEKA, og eru þeir sérstaklega hannaðir til að uppfylla kröfur leikvangsins. Bitarnir eru tæplega tveir metrar á lengd, veðurheldir og sveigjanlegir í notkun. Uppsetningu og viðhaldi ljóseininganna er sinnt frá rými innan í Boganum. „Að lýsa þetta mikilfenglega mannvirki með ljósdíóðum var mikil áskorun,“ sagði verkfræðingurinn Florian Hockel sem bar ábyrgð á verkefninu. „Útkoman er frábær og má telja víst að hún muni vekja hrifningu gesta.“
Annars staðar í Suður Afríku er einnig eftirspurn eftir sérfræðikunnáttu OSRAM: perur fyrirtækisins eru t.d. notaðar til að lýsa flugvellina í Durban, Jóhannesarborg og Höfðaborg. Á miklum fjölda lestarstöðva í Pretoríu og Jóhannesarborg og á 150 km löngum hluta aðalbrautar eru perur frá OSRAM einnig notaðar til lýsingar.