Svör við algengum spurningum varðandi sparperur
Kostnaður og mögulegur sparnaður sem fylgir notkun sparpera
- Hversu mikið rafmagn mætti spara í heiminum ef allir notuðu sparperur?
- Hvernig er rétt að losa sig við sparperur?
- Hvar get ég keypt sparperur?
- Af hverju eru sparperur dýrari en venjulegar ljósaperur?
Sparperur og umhverfisvernd
- Innihalda sparperur kvikasilfur?
- Sumar sparperur hafa merkinguna: " RoHS compliant"
- Hvað með rafsegulsvið og sparperur?
Hvernig sparperur virka
- Gefa umbúðir til kynna hvort um er að ræða sparperu eða venjulega ljósaperu?
- Er til tækni sem gerir mögulega framleiðslu glópera með lengri endingartíma?
- Hvernig virkar sparpera?
- Hversu lengi endast sparperur samanborið við venjulegar ljósaperur?
- Hvaða tæknilega framþróun gæti átt sér stað á næstu árum á sviði sparpera?
- Hvaða tæknilegi munur er á sparperum og venjulegum ljósaperum?
- Hvaða útlitslegi munur er á sparperum og venjulegum ljósaperum?
- Hvað er sparpera?
- Hvers vegna er enn þörf á forhitun?
Ljósstyrkur og ljóslitur sparperu
- Er munur milli peranna m.t.t. ljóss eða litbrigða?
- Geta sparperur flöktað?
- Er ljós frá sparperum ekki fremur óþægilegt?
Mismunandi gerðir sparpera
- Eru til dimmanlegar sparperur?
- Er gæðamunur milli sparpera?
- Skaðar tíð ljósdeyfing sparperur á einhvern hátt?
- Er til gæðastimpill fyrir sparperur?
- Hvað eru halógen sparperur?
- Hverjar eru hinar ólíku gerðir sparpera?
Notkun sparpera
- Eru sparperur fáanlegar fyrir götulýsingu eða bifreiðar?
- Krefst það meiri orku að kveikja á sparperu en að hafa kveikt á henni í einn klukkutíma?
- Hversu langan tíma tekur að kvikna á sparperu? Sekúndur eða mínútur?
- Hversu oft er hægt að kveikja og slökkva á sparperum?
- Er skynsamlegra að hafa kveikt á sparperum fremur en að kveikja og slökkva sífellt á þeim?
- Er skynsamlegt að nota sparperur í stigagöngum með stuttan notkunartíma?
- Er mögulegt að sparpera og lampi passi ekki saman?
- Hvað þarf ég að vita um notkun sparpera?
- Hvert er sambandið milli styrkleika venjulegra ljósapera og sparpera?
- Hvar er hægt að nota sparperur?
Hversu mikið rafmagn mætti spara í heiminum ef allir notuðu sparperur?
Spurning
Hversu mikið rafmagn mætti spara í heiminum ef allir notuðu sparperur?
Svar
Ef gert er ráð fyrir að 30% heimsins skiptu yfir í notkun orkusparandi lýsingarvara myndi koltvísýringslosun minnka um u.þ.b. 260 milljón tonn og rafmagnsnotkun um 460 milljarða kw/klst. Þessi tala er u.þ.b. jöfn árlegri rafmagnsnotkun Indlands, helmings Japans eða fjórðungs Kína.
Hvernig er rétt að losa sig við sparperur?
Spurning
Hvernig er rétt að losa sig við sparperur?
Svar
Sparperur falla undir flokkinn, „úrhleðsluperur“, og innihalda kvikasilfur í litlu magni. Þetta þýðir að neytendur ættu ekki að henda sparperum með venjulegu heimilisrusli líkt og þeir gera við venjulegar ljósaperur. Sparperur verður að losa sig við með réttum hætti hjá endurvinnslustöðvum eða stöðvum sem taka við rafbúnaði sem á að farga. Þjónustan er veitt án endurgjalds.
Hvar get ég keypt sparperur?
Spurning
Hvar get ég keypt sparperur?
Svar
Sparperur eru fáanlegar í miklum fjölda smásöluverslana.
Af hverju eru sparperur dýrari en venjulegar ljósaperur?
Spurning
Af hverju eru sparperur dýrari en venjulegar ljósaperur?
Svar
Innkaupsverð venjulegrar ljósaperu er sannarlega lægra en innkaupsverð sparperu. Hins vegar nota sparperur mun minna rafmagn og endast mun lengur sem gerir að verkum að þær eru ódýrari til lengri tíma litið.
Sparperur endast í u.þ.b. 15.000 klst. á meðan venjulegar ljósaperur endast einungis í 1.000 klst. Því þarf að fjárfesta í 15 ljósaperum hverri á eftir annarri til að fá fram sama endingartíma og ein sparpera veitir.
Innihalda sparperur kvikasilfur?
Spurning
Innihalda sparperur kvikasilfur?
Svar
Flestar flúrperur, sparperur og háþrýstar úrhleðsluperur innihalda kvikasilfur. Án þess væru perurnar mun óskilvirkari og myndu einnig skila verri frammistöðu á öðrum sviðum
OSRAM leggur mikla vinnu í rannsóknir og þróun með það að markmiði að minnka kvikusilfursinnihald í perum fyrirtækisins. Markmiðið er framleiðsla kvikusilfurslausra úrhleðslupera sem skila sambærilegri frammistöðu. Að sjálfsögðu uppfylla allar perur framleiddar af OSRAM viðeigandi staðla, s.s. evrópsku RoHS (Restriction of Hazardous Substances) tilskipunina fyrir perur sem settar eru á markað innan ESB.
Engu að síður ætti að hafa í huga að kvikasilfur er eiturefni þannig að nauðsynlegt er að fólk losi sig með réttum hætti við allar perur sem innihalda kvikasilfur eða, það sem er betra, að perurnar séu endurunnar – jafnvel þótt magn efnisins hafi verið minnkað niður í aðeins fá milligrömm.
Sumar sparperur hafa merkinguna: " RoHS compliant"
Spurning
Sumar sparperur hafa merkinguna: " RoHS compliant" (Restriction of Hazardous Substances). Hvað merkir þetta?
Svar
Síðan í júlí árið 2006 hafa í Evrópu gilt lög um hættuleg efni (hazardous substances). Frá þeim tíma hafa allar sparperur í Evrópu þurft að vera í samræmi við þessa RoHS tilskipun. Tilskipunin var hönnuð til að stjórna og minnka magn hættulegra efna sem fylgja ýmissi tækni í tengslum við perur.
Þar sem að OSRAM fer eftir öllum CFLi stöðlum – þ.á.m. RoHS – teljum við ekki nauðsynlegt að minnast á hvern staðal fyrir sig á umbúðum.
Hvað með rafsegulsvið og sparperur?
Spurning
Hvað með rafsegulsvið og sparperur?
Svar
Rafsegulsvið eru staðreynd í daglegu lífi fólks í iðnvæddum löndum. Rafsegulsvið (EMF [electromagnetic fields]) eru fyrir hendi hvar sem rafmagn kemur við sögu.
Bæði ljósaperur og sparperur mynda rafsegulsvið. Öll lýsingarkerfi frá OSRAM eru hins vegar vel innan innlendra og alþjóðlegra viðmiðunarmarka. Rafsegulsvið velta ekki einungis á stjórnbúnaðinum og perunni heldur einnig á hönnun perunnar.
érfræðingar og stofnanir líkt og WHO eru ábyrgar fyrir því að skilgreina viðmiðunarmörkin. Viðmiðunarmörkin eru staðfest af WHO og Alþjóða geislavarnarsamtökunum (IRPA [International Radiation Protection Agency]) og felld inn í löggjöf ESB.
Gefa umbúðir til kynna hvort um er að ræða sparperu eða venjulega ljósaperu?
Spurning
Gefa umbúðir til kynna hvort um er að ræða sparperu eða venjulega ljósaperu?
Svar
Fyrir meirihluta vara okkar notum við umbúðir úr pappa. Aðeins lítill hluti (minna en 5%) kemur í himnupakkningum – vegna krafna smásöluviðskiptavina okkar.
OSRAM notar grænar umbúðir fyrir sparperur til að gefa til kynna að þær séu umhverfisvænar. OSRAM glóperur eru seldar í appelsínugulum umbúðum.
OSRAM er mjög umhugað um umhverfisáhrif hvað viðkemur framleiðsluferlum og vörum en einnig í tengslum við umbúðir. Hér er um að ræða viðvarandi ferli stöðugra umbóta.
Er til tækni sem gerir mögulega framleiðslu glópera með lengri endingartíma?
Spurning
Er til tækni sem gerir mögulega framleiðslu glópera með lengri endingartíma?
Svar
Fylgni er milli ljósnýtni og endingartíma peru (ekki línuleg fylgni heldur lógaritma fylgni). Ef framleiddar væru glóperur með mun lengri endingartíma (þetta er ekki eitthvað sem OSRAM gerir) væri skilvirkni peranna mun minni (lengri endingartími minnkar ljósnýtni).
Dæmi:
60 W glópera sem endist í 1.000 klst. býður upp á 12 lúmen/W.
60 W glópera sem endist í 2.000 klst. býður upp á einungis 10.5 lúmen/W.
Pera með minni ljósnýtni er þannig óskilvirkari yfir lengri endingartíma.
OSRAM mælir með að neytendur skipti yfir í skilvirkari perur á borð við sparperur (orkusparandi perur) eða halógen perur (halógen sparperur verða kynntar í sumar), sérstaklega þegar um er að ræða staði þar sem perur eru í notkun yfir nokkuð langan tíma. Orkunýtni er sérstaklega mikilvæg í tengslum við loftslagsverndun.
Hvernig virkar sparpera?
Spurning
Hvernig virkar sparpera?
Svar
Sparpera breytir fimm sinnum meiri orku í ljós en venjuleg ljósapera. 25% af notaðri orku er breytt í ljós.
Venjuleg ljósapera breytir 95% af þeirri orku sem hún notar í hita og einungis 5% í ljós..
Dæmi: 100 W ljósaperu er hægt að skipta út fyrir 20 W sparperu.
Hversu lengi endast sparperur samanborið við venjulega ljósaperur?
Spurning
Hversu lengi endast sparperur samanborið við venjulega ljósaperur?
Svar
Venjuleg ljósapera hefur u.þ.b. 1.000 klst. endingartíma að meðaltali (ef hún er notuð í 3 klst. á dag að meðaltali endist hún u.þ.b. 1 ár).
OSRAM sparperur eru fáanlegar í mismunandi flokkum: 15.000 klst., 10.000 klst. og 6.000 klst. eða endingartími upp á allt að 15 ár, 10 ár eða 6 ár miðað við 3 klst. notkun á dag að meðaltali.
Þýsku neytendasamtökin, Stiftung Warentest, staðfestu (í tímariti sínu frá janúar 2007) að OSRAM sparperur standa við loforð um gæði og endingartíma, ólíkt perum frá sumum óvönduðum framleiðendum. Þar að auki voru OSRAM perur bjartastar allra pera jafnvel eftir langa notkun.
Þess virði er að velja endingargóðar perur þar sem þær eru ódýrari þegar litið er til heildarendingartíma þeirra. Sem dæmi má nefna að til að fá fram 15.000 klst. endingu þarf eina OSRAM DULUX EL Longlife sparperu en hins vegar 2,5 sparperur með 6.000 klst. endingu (2,5 x 6.000 klst. = 15.000 klst.).
Hvaða tæknilega framþróun gæti átt sér stað á næstu árum á sviði sparpera?
Spurning
Hvaða tæknilega framþróun gæti átt sér stað á næstu árum á sviði sparpera?
Svar
Ávallt er mögulegt að bæta hlutina. OSRAM leggur mikla fjármuni í rannsóknir og þróun hátæknipera, s.s. háþrýstra úrhleðslupera (fyrir t.d. verslunarlýsingu) og að sjálfsögðu sparpera (t.d. heimsins fyrstu flöktlausu og stiglaust dimmanlegu sparperuna) til viðbótar við halógen perur (orkusparandi halógen perur voru kynntar sumarið 2007).
Önnur mikilvæg nýjung eru rafskautalausar (electrodeless) sparperur, líkt og OSRAM DULUX EL CONCENTRA R80 23 W. Þær gefa samstundis 60% af ljósmagni sínu og gefa fullt ljósmagn eftir einungis 10 sekúndur. Þessi snögga kveiking er gerð möguleg með segulsviði sem kveikir í gasinu í keflinu (aðrar gerðir nota rafskaut en þau slitna). Amalgam er notað í þessari peru sem gerir hana hentuga til notkunar við breiðara bil hitastigs. 90% af ljósstreymi fæst við hitastig milli -5°C and +65°C. Peran er þess vegna einnig hentug til notkunar í mjóum lömpum. Concentra R80 peran er sérstaklega endingargóð þar sem hún býður upp á 15.000 klst. meðalendingartíma og 500.000 kveikja/slökkva ferli. Gerðir með lögun sígildra ljósapera verðar kynntar í haust.
Sumarið 2007 kynnti OSRAM halógen sparperur. Þar með gátu neytendur valið úr enn ríkulegra úrvali orkusparandi lýsingarlausna. Halógen sparperur gefa hið skæra ljós sem halógen perur eru þekktar fyrir. Þær eru takmarkalaust dimmanlegar, endast tvöfalt lengur en glóperur og skila 30% orkusparnaði.
LED ljósgjafar eru lýsing framtíðarinnar. LED perur gera mögulega nýja notkun af ýmsu tagi aðallega vegna fyrirferðarlítillar hönnunar og orkunýtni. Hér má nefna lýsingu fyrir byggingar og heilsuiðnaðinn þar sem litað ljós er sérstaklega vel metið.
Næsta skref í þróuninni eru lífrænar ljósdíóður organic LED (OLED). OLED tækni er enn á rannsóknarstigi og munu líða nokkur ár áður en fyrsti búnaðurinn verður fáanlegur.
Hvaða tæknilegi munur er á sparperum og venjulegum ljósaperum?
Spurning
Hvaða tæknilegi munur er á sparperum og venjulegum ljósaperum?
Svar
Munurinn liggur í þeim eðlisfræðilegu þáttum sem koma við sögu: sparpera er lágþrýst úrhleðslupera en venjuleg glópera er hins vegar hitageislari (thermal radiator). Í glóperu flæðir straumur í gegnum grannan vír sem gerir að verkum að hann glóir. Tungsten vírinn hitnar upp í u.þ.b. 2.500°C sem þýðir að mestur hluti útgeislunarinnar er ósýnileg innrauð geislun – m.ö.o. hitageislun. Peran breytir einungis 5% af orkunni í ljós og nær þannig fram ljósstreymi upp á 7 – 15 lúmen per vött.
Sparperur sem gefa milli 30 og 70 lúmen per vött eftir hönnun og ljósmagni virka á allt annan hátt. Inni í þeim er þráður sem sendir frá sér rafeindir þegar hann er hitaður upp í 1.500°C að hámarki. Þessar rafeindir þjóta um innan pípanna þar sem þær rekast á kvikasilfursatóm. Þetta myndar ósýnilegt útfjólublátt ljós. Ljósið breytist einungis í sjáanlegt ljós þegar það rekst á innri húðun pípanna (= fosfór). Það hvort ljósliturinn verður hlýrri eða kaldari veltur á samsetningu fosfórsins. Sparperur þurfa á rafrænum stjórnbúnaði að halda. Þessi stjórnbúnaður er innbyggður í sparperur (CFLi) sem gerir þær tilvalinn valkost í stað glópera.
Sumar sparperur eru hins vegar ekki með innbyggðan rafrænan stjórnbúnað. Þessar perur eru aðallega notaðar í atvinnugeiranum, t.d. innan skrifstofa, verslana og verksmiðja.
Hvaða útlitslegi munur er á sparperum og venjulegum ljósaperum?
Spurning
Hvaða útlitslegi munur er á sparperum og venjulegum ljósaperum?
Svar
Til viðbótar við rörlaga útgáfur eru sparperur fáanlegar í ýmsum sígildum formum. Þ.á.m. má nefna kertalaga perur og perur með lögun venjulegra ljósapera.
Fyrsta sparperan sem OSRAM kynnti árið 1985 var mjög löng og hafði tiltölulega mikið þvermál. Perurnar eru nú mun minni og, með hliðsjón af gerðum, eru þær fáanlegar í sömu stærð og venjulegar ljósaperur.
Á hverri sparperu má sjá hvítan hluta milli glersins og sökkulsins. Það er hér sem rafræni stjórnbúnaðurinn er geymdur. Þetta atriði gerir neytendum auðvelt fyrir við að sjá hvort um er að ræða sparperu eða glóperu.
Hvað er sparpera?
Spurning
Hvað er sparpera?
Svar
Sparperur eru í reynd “sambyggðar flúrperur með innbyggðum rafrænum stjórnbúnaði (CFLi)” aog eru flokkaðar sem flúrperur.
Pípan þar sem ljósið myndast er beygð til baka (bent back on itself) í þeim tilgangi að gera peruna fyrirferðarminni. Í meginatriðum er því um að ræða flúrperu með margbeygðri pípu, stjórnbúnaði og sökkli. Sparperur er hægt að nota á sama hátt og venjulegar ljósaperur (glóperur) en yfirleitt er ekki hægt að dimma þær.
Sparperur eru nú fáanlegar í miklu úrvali forma og með mismunandi sökkla. Stiglaust dimmanlegar útgáfur eru nýjung á markaðnum. Pera með tveggja þrepa ljósdeyfivirkni hefur verið fáanleg um nokkurt skeið.
Hvers vegna er enn þörf á forhitun?
Spurning
Hvers vegna er enn þörf á forhitun?
Svar
OSRAM býður nú upp á Quickstart virkni fyrir allar sparperur til heimilisnota sem eru með 10.000 klst. endingartíma. Þessi einkaleyfisverndaða tækni var þróuð í Augsburg. Hún tryggir að sparperur frá OSRAM (með 10.000 klst. endingartíma) bjóða upp á mun sneggri kveikingu og gefa samstundis 40% af ljósmagni sínu.
Einn kostur forhitunar er sá að perurnar þola betur að oft sé kveikt og slökkt á þeim. Sparpera (15.000 klst.) með forhitun býður upp á allt að 500.000 kveikja/slökkva aðgerðir. Sparpera með 10.000 klst. endingartíma og Quickstart virkni (en án forhitunar) býður hins vegar upp á allt að 10.000 kveikja/slökkva aðgerðir sem er fyllilega nóg fyrir heimilisnotkun.
OSRAM notast því við forhitunarvirkni í atvinnugeiranum þar sem gerð er krafa um 15.000 klst. endingartíma, t.d. innan skrifstofa. Snökk kveiking er ekki ómissandi við slíka notkun en langur endingartími er hins vegar nauðsynlegur.
15.000 klst. sparperan með forhitun er einungis fáanleg fyrir notkun í atvinnugeiranum.
Er munur milli peranna m.t.t. ljóss eða litbrigða?
Spurning
Er munur milli peranna m.t.t. ljóss eða litbrigða?
Svar
Það hversu „hlýtt“ eða „kalt“ ljós er veltur á litahitastiginu og er mælt í Kelvin gráðum. Hinn vinsæli hlýhvíti litur venjulegrar ljósaperu svarar til 2700 Kelvin gráða. OSRAM sparperur gefa þennan ljóslit. Sérstakar útgáfur með mismunandi litahitastig frá Warm White til Daylight eru einnig fáanlegar.
Warm White = 2700 Kelvin
Cool White = 4000 Kelvin
Daylight = 6000 Kelvin
Ljós sem svarar til 2700 K er svipað birtunni frá venjulegri ljósaperu þannig að það er tilvalið til notkunar heima fyrir. Kaldari ljóslitirnir eru oft kosnir í sunnanverðri Evrópu og í Asíulöndum þar sem er sérstaklega hlýtt loftslag.
Nýja samfellt dimmanlega sparperan, OSRAM DULUX EL DIM, mun verða fáanleg í 2700 K - hlýhvíta litnum.
Geta sparperur flöktað?
Spurning
Geta sparperur flöktað?
Svar
Já, þetta kann að henda í tilviki óvandaðra pera. Gæðaperur frá OSRAM flökta ekki!
Er ljós frá sparperum ekki fremur óþægilegt?
Spurning
Er ljós frá sparperum ekki fremur óþægilegt?
Svar
Nei. Hver sem segist vera óánægður með ljóslit sparpera ætti að athuga Kelvin gildi peranna og leita eftir Warm White merkinu.
Mikilvægt: Sparperur af lágum gæðum eru oft sagðar hafa ljóslit sem svarar til 2700 K en reyndin er hins vegar önnur. Við kaup á sparperum er best að velja gæðavörur frá OSRAM til að koma í veg fyrir vonbrigði. Enginn vill slaka á heima fyrir við bláleitt eða jafnvel grænleitt ljós!
Eru til dimmanlegar sparperur?
Spurning
Eru til dimmanlegar sparperur?
Svar
Já, OSRAM DULUX EL DIM er slík pera. Hún er fyrsta stiglaust dimmanlega sparperan og nota má hana með flestum hefðbundnum ljósdeyfum (phase dimmers). Því er kjörið að skipta út gömlu perunum fyrir OSRAM DULUX EL DIM. Aðrar perur er einungis unnt að dimma í þrepum, ekki stiglaust.
Þróun dimmanlegu sparperunnar var gríðarleg áskorun þar sem að þörf var á háþróaðri rafeindatækni til að gera hana samrýmanlega algengustu ljósdeyfirofum. OSRAM hefur prófað peruna með u.þ.b. 50 mismunandi ljósdeyfum sem fáanlegir eru á markaðnum. Venjulegar sparperur hafa upp undir 40 íhluti í rafræna stjórnbúnaðinum; OSRAM DULUX EL DIM peran þarf allt að 250 íhluti.
Einnig er fáanleg OSRAM DULUX EL VARIO peran sem býður upp á mismunandi ljósdeyfistig. Með þessari peru er unnt að stilla orkusparandi lýsingu án notkunar ljósdeyfa. Tveggja þrepa ljósdeyfivirknin gefur bjart ljós eða þægilegt deyft ljós með því einu að smella á ljósrofann.
Er gæðamunur milli sparpera?
Spurning
Er gæðamunur milli sparpera?
Svar
Já, í sumum tilvikum er um mikinn mun að ræða. Þýsku neytendasamtökin (Stiftung Warentest) prófuðu 27 sparperur og komust að þeirri niðurstöðu að OSRAM perur væru bjartastar af þeim öllum jafnvel eftir 19.000 klst. notkun. Sparperur frá OSRAM skiluðu frábærri frammistöðu, bæði útgáfur með E27 skrúfsökklum og þær með smærri E14 sökklum.
OSRAM sparperur voru ekki einungis hagkvæmastar af þeim perum sem voru prófaðar heldur einnig þær sem þoldu flestar kveikja/slökkva aðgerðir. Tíðar kveikja/slökkva aðgerðir skapa engin vandamál fyrir OSRAM perur. Slíkt hafði hins vegar slæm áhrif á sumar hinna sparperanna. Tólf gerðir biluðu fyrr en eðlilegt þykir í kveikja/slökkva prófinu.
Það er því óhætt að segja að OSRAM sparperur standa sig vel hvað varðar orku- og peningasparnað.
Skaðar tíð ljósdeyfing sparperur á einhvern hátt?
Spurning
Skaðar tíð ljósdeyfing sparperur á einhvern hátt?
Svar
Nei, en það er mikilvægt að muna að venjulegar sparperur er EKKI HÆGT að dimma. Einungis dimmanlegar sparperur bjóða upp á notkun af þessu tagi. Ef reynt er að dimma venjulega sparperu mun hún bila í fyrstu tilraun. Jafnvel kann að kvikna í óvönduðum perum. Ódimmanlegu OSRAM sparperurnar eru með öryggi (safety circuit) sem kemur í veg fyrir að þetta gerist.
Er til gæðastimpill fyrir sparperur?
Spurning
Er til gæðastimpill fyrir sparperur?
Svar
OSRAM stendur ávallt fyrir mikil gæði. OSRAM býður neytendum upp á 3 ára ábyrgð fyrir OSRAM DULUXSTAR línuna og 5 ára ábyrgð fyrir OSRAM DULUX SUPERSTAR línuna.
Hvað eru halógen sparperur?
Spurning
Hvað eru halógen sparperur?
Svar
Halógen sparperur gefa hið skæra ljós sem halógen perur eru þekktar fyrir. Þær eru takmarkalaust dimmanlegar, endast tvöfalt lengur en glóperur og skila 30% orkusparnaði.
Sumarið 2007 kynnti OSRAM halógen sparperur og gerði þar með neytendum kleift að velja úr enn ríkulegra úrvali sparpera.
Hverjar eru hinar ólíku gerðir sparpera?
Spurning
Hverjar eru hinar ólíku gerðir sparpera?
Svar
Margir halda að einungis séu fáanlegar rörlaga sparperur. Reyndin er sú að neytendur geta nú valið úr miklu úrvali forma, stærða, sökkla og styrkleika. Nú átt þú kost á orkusparandi perum með t.d. lögun hefðbundinna ljósapera eða kertapera. Einnig eru fáanlegar perur sem bjóða upp á kosti til viðbótar við orkusparnað.
T.d. má nefna OSRAM DULUX EL REFLECTOR sem er orkusparandi kastarapera sem býður upp á afmarkað ljós fyrir hluti eða veggi.
OSRAM DULUX EL SENSOR er tilvalin fyrir stöðuga lýsingu sem er sjálfvirk, hagkvæm og áreiðanleg. Það kviknar sjálfvirkt á perunni þegar dimmir og slokknar þegar birtir. Hágæða nemarnir veita ljós þegar á þarf að halda.
Sparperan með eftirtektarverðustu lögunina er OSRAM CIRCOLUX EL. Hún var sérstaklega þróuð fyrir hengilampa og lampa með skermi. Sérstök hönnun perunnar gerir mögulega mjög jafna ljósdreifingu.
Eru sparperur fáanlegar fyrir götulýsingu eða bifreiðar?
Spurning
Eru sparperur fáanlegar fyrir götulýsingu eða bifreiðar?
Svar
Innan Evrópu eru ekki til sparperur til götulýsingar en í sumum Asíulöndum er þær hins vegar fáanlegar. Hagkvæm götulýsing er t.d. möguleg með notkun natríumpera (NAV). Ljósdíóður eru yfirleitt notaðar í bifreiðum.
Krefst það meiri orku að kveikja á sparperu en að hafa kveikt á henni í einn klukkutíma?
Spurning
Krefst það meiri orku að kveikja á sparperu en að hafa kveikt á henni í einn klukkutíma?
Svar
No.
Hversu langan tíma tekur að kvikna á sparperu? Sekúndur eða mínútur?
Spurning
Hversu langan tíma tekur að kvikna á sparperu? Sekúndur eða mínútur?
Svar
Með einkaleyfisvernduðu Quickstart tækninni frá OSRAM gefa sparperur tvöfalt meira ljós en venjulegar sparperur (frá öðrum framleiðendum) um leið og kveikt er á þeim. Nýja rafskautalausa (electrodeless) peran gefur 80% af ljósmagni sínu eftir einungis 10 sekúndur.
Hversu oft er hægt að kveikja og slökkva á sparperum?
Spurning
Hversu oft er hægt að kveikja og slökkva á sparperum?
Svar
Hægt er að kveikja og slökkva á 6.000 klst. perunum allt að 5.000 sinnum. Hægt er að kveikja og slökkva allt að 10.000 sinnum á 10.000 klst. perunum og allt að 500.000 sinnum á 15.000 klst. perunum.
OSRAM býður einnig upp á Facility línuna af sparperum. Þessar sparperur endast í 15.000 klst., bjóða upp á ótakmarkaðar kveikja/slökkva aðgerðir og eru útbúnar með Quickstart. OSRAM mælir með þessum perum fyrir lýsingu í stigagöngum með tímarofum. Við slíkar aðstæður eru ljósin oft kveikt og slökkt og einungis er kveikt á þeim í stuttan tíma í senn.
Er skynsamlegra að hafa kveikt á sparperum fremur en að kveikja og slökkva sífellt á þeim?
Spurning
Er skynsamlegra að hafa kveikt á sparperum fremur en að kveikja og slökkva sífellt á þeim?
Svar
Innan heimila eru ljósin ekki kveikt og slökkt nógu oft til að það geti haft áhrif á endingu pera af háum gæðum. Af þeirri ástæðu fylgja því engin vandamál þótt oft sé kveikt og slökkt t.d. á peru inni á baðherbergi.
Til að prófanir séu í samræmi við viðeigandi staðla er endingartími peru mældur á grundvelli þess að í 165 mínútur sé kveikt á perunni og í 15 mínútur slökkt.
Að kveikja og slökkva stöðugt á perum án hlés kann að stytta endingartíma þeirra. Þar sem sparperur eru notaðar við venjulegar kringumstæður er einfaldlega engin hætta á að slíkt gerist. Engin vandamál eru fyrir hendi í tengslum við venjulega notkun.
Er skynsamlegt að nota sparperur í stigagöngum með stuttan notkunartíma?strong>
Spurning
Er skynsamlegt að nota sparperur í stigagöngum með stuttan notkunartíma?
Svar
Fyrir t.d. notkun í stigagöngum þar sem ljósin eru oft kveikt og slökkt er best að nota sparperur sérstaklega hannaðar til notkunar af þessu tagi. Lausnin kallast OSRAM DULUX EL FACILITY. Þessi pera hefur sérstakan rafrænan stjórnbúnað fyrir snögga kveikingu og býður upp á ótakmarkaðar kveikja/slökkva aðgerðir. OSRAM er eini ljósaframleiðandinn sem býður upp á þessa Facility línu.
Er mögulegt að sparpera og lampi passi ekki saman?
Spurning
Er mögulegt að sparpera og lampi passi ekki saman?
Svar
Vandamál geta einungis komið upp í tengslum við lampa sem uppfylla ekki viðeigandi staðla eða ef um ljósdeyfingu er að ræða.
Hvað þarf ég að vita um notkun sparpera?
Spurning
Hvað þarf ég að vita um notkun sparpera?
Svar
Sparperur virka án nokkurra vandræða í öllum lömpum sem uppfylla viðeigandi staðla. Undir engum kringumstæðum má dimma perurnar nema ef þær eru sérstaklega hannaðar sem dimmanlegar sparperur.
Sparperur falla undir flokkinn, „úrhleðsluperur“, og innihalda kvikasilfur í litlu magni. Þetta þýðir að neytendur ættu ekki að henda sparperum með venjulegu heimilisrusli líkt og þeir gera við venjulegar ljósaperur. Innan ESB verða neytendur að losa sig við sparperur með réttum hætti hjá endurvinnslustöðvum eða stöðvum sem taka við rafbúnaði sem á að farga. Þjónustan er veitt án endurgjalds.
Hvert er sambandið milli styrkleika venjulegra ljósapera og sparpera?
Spurning
Hvert er sambandið milli styrkleika venjulegra ljósapera og sparpera?
Svar
Samkvæmt þýsku orkumálastofnuninni (German Energy Agency) veitir 7 til 9 W sparpera jafn mikið ljós og 40 W glópera. 60 W glóperu er hægt að skipta út fyrir 11 til 16 W sparperu (eftir gerð). 20 W sparpera er tilvalinn valkostur í stað 100 W glóperu. Sparperurnar spara neytendum peninga og aðstoða einnig við umhverfisvernd.
Margir lampar eru hannaðir fyrir að hámarki 60 W perur eða jafnvel 40 W þannig að það eru takmörk fyrir því ljósmagni sem þeir geta gefið. Ef sparperur eru hins vegar notaðar fyrir slíka lampa geta þeir í sumum tilvikum gefið mun bjartara ljós.
Hvar er hægt að nota sparperur?
Spurning
Hvar er hægt að nota sparperur?
Svar
Sparperur henta nánast alls staðar, en ekki er hægt að nota þær í ofnum, ísskápum og örbylgjuofnum. Kuldi og hiti hafa áhrif á virkni úrhleðslupera.
(Heimild: http://www.osram.com/osram_com/Tools_%26_Services/Training_%26_Knowledge/FAQ/General_Lighting/Energy-saving_lamps__Compact_fluorescent_lamps/index.html)
533 1900




Jóhann Ólafsson & Co ehf | Sími: 533 1900 | Krókháls 3 | 110 Reykjavík | Netfang: